Enska knattspyrnufélagið Chelsea er búið að reka ástralska markmanninn Mark Bosnich. Chelsea segir ástæðuna fyrir því að samningur ástralans hafi verið rifinn sé fall á lyfjaprófum fyrir stuttu, en hann hefur verið sakaður fyrir kókaín-neyslu.

Lögfræðingar Chelsea eru grjótharðir á því að Ástralinn hafi gerst brotlegur gegn sanmingnum eftir lyfjaprófið en þó er fastlega reiknað með því að Bosnich muni berjast gegn kæru enska knattspyrnusambandsins á hendur hinum fyrir brot á lögum um hegðun en til þess hefur hann frest til föstudags.