Olivier Dacourt leikmaður Leeds og franska landsliðsins er a öllum líkindum á leið til Roma á Ítalíu.
Dacourt hefur ekki verið í náðinni hjá Terry Venables stjóra Leeds United og hefur lítið fengið að spreyta sig.
Dacourt mun aðeins semja við liðið út tímabilið til að byrja með möguleika á að framlengja samning sinn, og vonar Fabio Capello að Dacourt verði með sem fyrst.


Heimildir af gras.is og leeds.is