Það er nú mikið gaman að svara og skoða kannanir sem sendar eru inn á þetta svæði en mér finnst það nú lágmark hjá stjórnendum svæðisins að leyfa ekki kannanir sem eru ekki nógu góðar og skilmerkilegar eins og sú sem er núna í gangi (18. des) þar sem spurt er um Kean. Nú eru margir leikmenn í ensku úrvalsdeildinni sem heita Kean, m.a. tveir Írar, og þætti mér það ágætt ef stjórnendur myndu ekki samþykkja svona kannanir nema rétt sé að þeim staðið.