Stjarnan Það hefur ekki farið framhjá neinum að lið Stjörnunnar úr Garðabæ sem leikur í 1.deildinni hefur undanfarnar vikur verið að missa nokkra burðarása úr liði sínu. Sóknarmaðurinn Garðar Jóhannsson er kominn til Íslandsmeistara KR en hann var markahæsti leikmaður 1. deildar í fyrra. Garðar var laus undan samningi við Garðabæjarliðið sem fær því ekkert fyrir hann. Þá er fyrirliði Stjörnunnar, Ragnar Árnason, genginn til liðs við Fram. Ragnar er 26 ára varnarmaður sem spilaði 17 af 18 leikjum Stjörnunnar í 1.deildinni í sumar.

Eftir þetta birti vefsíðan Gras.is fréttir þess efnis að stór hluti leikmanna Stjörnunnar væru á förum frá félaginu vegna ógreiddra launaskulda. Þessu hafnar knattspyrnudeildar Stjörnunnar alfarið og vill koma eftirfarandi á framfæri.

“Vegna rangra fullyrðinga ritstjóra gras.is um um fjárhag og
leikmannamál knattspyrnudeildar Stjönunnar er því hér með
komið á framfæri að fjárhagsstaða deildarinnar er góð.
Uppgjör við leikmenn er með eðlilegum hætti og verður að
fullu lokið um næstu mánaðarmót. Flest allir leikmenn
félagsins munu leika áfram með félaginu.”

Annars er það að frétta úr herbúðum Stjörnunnar að Gunnar Guðmundsson varnarmaður og þjálfari Leifturs/Dalvíkur
hefur gengið til liðs við Stjörnuna. Með samningi sínum við Gunnar og fleiri nýja leikmenn hyggst Stjarnan styrkja lið sitt fyrir næsta keppnistímabil. Markmið félagsins er að vinna sig upp í úrvalsdeild á næsta ári en í ár munaði aðeins markahlutfalli að það tækist.