Shevchenko kominn aftur!!!! Stórstjarnan og snillingurinn hjá AC Milan Andriy Shevchenko er kominn aftur úr meiðslum, en hann er búinn að vera meiddur alla leiktíðina.

Þrátt fyrir það hefur AC Milan ekki lent í vandræðum með það að skora mörk, því þeir eru búnir að setja 17 stykki. Einn af heitustu framherjum heimsins í dag, Filippo Inzaghi er búinn að skora 6 mörk í deildinni og 8 á Meistaradeildinni.

Shevchenko og Inzaghi eiga eflaust eftir að setja nokkur í viðbót.
Samkvæmt könnun sem var gerð hér á huga.is eru 34% sem segja að þeir séu heitasta framherjaparið í ítalska boltanum.