Ensku sunnudagsblöðin segja að Man.Utd. hafi áhuga á að fá Emmanuel Petit í sínar raðir. Petit sem spilar með Barcelona hefur ekki náð að koma sér vel fyrir þar vegna lélegs gengis þeirra bæði í spænsku deildinni og í meistarakeppninni. Aðalleikmannanjósnari Manchester ætlaði að fylgjast með Petit í leik Barcelona og Club Brugge í UEFA bikarnum en hætti við að fara á leikinn þegar ljóst var að Petit yrði ekki með.