Jimmy Floyd Hasselbaink leikmaður Chelsea hefur verið úrkurðaður í 3 leikja bann fyrir olnbogaskotið sem hann gaf Michael Ball í leik Chelsea og Everton á laugardaginn var. Þá hefur Ranieri knattspyrnustjóri Chelsea sektað hann tveggja vikna launa fyrir atvikið en þau nema tíu milljóna íslenskra króna. Chelsea sem hefur ekki staðið sig sem skildi mun því vængbrotna og munu einungis 2 framherjar vera eftir. Eiður Smári og Zola. Flo farinn og Hasselbaink í banni. Nokkuð ljóst er að Ranieri muni leita sér af nýjum framherja.