Finnur Kolbeinsson bestur Í gærkvöld hélt Knattspyrnusamband Íslands sitt lokahóf á Broadway. Boðið var upp á glæsilegar veitingar og svo voru viðurkenningar veitta. Fylkismaðurinn Finnur Kolbeinsson, leikmaður Fylkis var að mati leikmanna liðanna í Símadeildinni besti leikmaður Íslandsmótsins í knattspyrnu í karlaflokki. Finnur spilaði mjög vel með fyrirliðabandið fyrir Fylkismenn í sumar og er vel að titlinum kominn. KR-ingurinn Ásthildur Helgadóttir var valin best í kvennaflokki.

Gunnar Hreiðar Þorvaldsson, leikmaður ÍBV og Björg Ásta Þórðardóttir, leikmaður Breiðabliks, voru valin efnilegustu leikmennirnir. Þá var Egill Már Markússon valinn besti dómari nýlokins Íslandsmóts. Grétar Hjartarson, framherji Grindavíkur, fékk afhentan gullskóinn en hann var markahæstur í karlaflokki. Hér að neðan sjáið þið lista yfir markahæstu leikmennina í sumar:

13 - Grétar Ólafur Hjartarson, Grindavík
12 - Sævar Þór Gíslason, Fylkir
11 - Sigurður Ragnar Eyjólfsson, KR
11 - Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV
10 - Jóhann Þórhallsson, Þór A.