Veigar Páll bestur í umferðum 13-18 Í gær voru kunngjörð úrslit í vali fjölmiðla á liði umferða 13-18 í Símadeild karla og umferðum 8-14 í Símadeild kvenna. Þá var einnig valinn besti leikmaðurinn, þjálfarinn og og dómarinn. Það kemur væntanlega fáum á óvart að KR-ingar voru sigursælir í bæði karla- og kvennaflokki. Besti leikmaðurinn var valinn Veigar Páll Gunnarsson en hann gaf sig allan fram í leikjum KR í sumar og olli miklum usla í vörn andstæðingana. Willum Þór Þórsson var valinn besti þjálfarinn. KR-ingar unnu þessa tvo flokka einnig í kvennaflokki þar sem Ásthildur Helgadóttir og Vanda Sigurgeirsdóttir urðu fyrir valinu.

SÍMADEILD KARLA, lið umferða 13-18
Gunnar Sigurðsson - Fram
Kristján Sigurðsson – KA
Reynir Leósson – ÍA
Sinisa Kekic – Grindavík
Þormóður Egilsson - KR
Ágúst Gylfason – Fram
Grétar Rafn Steinsson – ÍA
Veigar Páll Gunnarsson – KR
Sigurvin Ólafsson - KR
Grétar Hjartarson – Grindavík
Sigurður Ragnar Eyjólfsson - KR

LEIKMAÐUR UMFERÐA 13-18
Veigar Páll Gunnarsson - KR

ÞJÁLFARI UMFERÐA 13-18
Willum Þór Þórsson - KR

DÓMARI UMFERÐA 13-18
Egill Már Markússon

—-

SÍMADEILD KVENNA, lið umferða 8-14
Sandra Sigurðardóttir – Þór/KA/KS
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir – KR
Rósa Júlía Steinþórsdóttir – Valur
Ásdís Þorgilsdóttir - KR
Björg Ásta Þórðardóttir - Breiðablik
Ásthildur Helgadóttir - KR
Margrét Ólafsdóttir - Breiðablik
Hólmfríður Magnúsdóttir - KR
Laufey Ólafsdóttir - ÍBV
Olga Færseth - KR
Hrefna Jóhannesdóttir - KR

LEIKMAÐUR UMFERÐA 8-14:
Ásthildur Helgadóttir - KR

ÞJÁLFARI UMFERÐA 8-14:
Vanda Sigurgeirsdóttir - KR