Bergkamp verður með gegn PSV í Eindhoven
Dennis Bergkamp, leikmaður enska meistaraliðsins Arsenla, mun leika með liðinu á útivelli í Meistardeild Evrópu en Bergkamp hefur ekki ferðast mikið með Lundúnarliðinu á þeim vettfangi vegna flughræðslu. Dennis Bergkamp, leikmaður enska meistaraliðsins Arsenal, mun leika með liðinu á útivelli í Meistardeild Evrópu en Bergkamp hefur ekki ferðast mikið með Lundúnaliðinu á þeim vettfangi vegna flughræðslu. Bergkamp, sem er hollenskur landsliðsmaður, mun aka frá London til Eindhoven þar sem Arsenal mætir hollenska liðinu PSV nk. miðvikudag. Samkvæmt venju verður það tengdafaðir hans sem verður ökumaður en aðeins um 400 km akstur er frá London til hollensku borgarinnar í gegnum Ermarsundsgöngin.