Ég verð bara að láta í ljós skoðun mína á hinum viðbjóðslega góða varnarmanni Arsenal, Silvinho Mendes Campos Júnior. Ég held að ég fari ekki með fleipur þegar ég segi að þetta sé besti útlenski varnarmaður sem komið hefur í ensku deildina. Hann minnir óneitanlega á einn af bestu varnarmönnum allra tíma, hann Roberto Carlos og ég helda að það sé ekki langt í það að hann eigi eftir að taka við af honum sem vinstri bakvörður hjá Brazilíu. Arsenal mega vera stoltir af þessum leikmanni því hann er ekki bara frábær varnarmaður, heldur er hann sókndjarfur (mörkin í vetur segja meira heldur en mörg orð) og mikill karakter og til fyrirmyndar innan vallar sem utan. Hann er SNILLINGUR