KÞÍ gagnrýnir stjórn ÍBV Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands sendir frá sé svohljóðandi fréttatilkynningu til fjölmiðla varðandi brottrekstra þjálfara ÍBV í kvenna og karla flokki:

Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands harmar vinnubrögð þau sem viðhöfð voru við brottrekstra Elísabetar Gunnarsdóttur og Njáls Eiðssonar frá ÍBV íþróttafélagi. Mikið er lagt upp úr því að knattspyrnuþjálfarar séu vel menntaðir og faglegir í öllum sínum vinnubrögðum. Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands skorar á íþróttafélög að gera sömu kröfur til stjórnarmanna sem starfa á þeirra vegum.

—————–
Grein eftir mig, 30.Júlí
ELÍSABET REKIN FRÁ ÍBV
Elísabetu Gunnarsdóttur, þjálfara kvennaliðs ÍBV, var sagt upp störfum en forráðamenn liðsins segja ástæðuna vera samskiptaörðuleika við bæði leikmenn og stjórn kvennadeildar ÍBV. Fram kemur á eyjafrettir.is að allir leikmenn liðsins styðji ákvörðun stjórnarinnar og munu áfram spila með liðinu. Fyrirliði liðsins, Michelle Barr, mun taka við liðinu amk. fyrst um sinn en Stefanía Guðjónsdóttir, sú þekkta handboltakona, mun aðstoða við þjálfun ásamt því að sjá um þjálfun 2. flokks.

—————–
Grein eftir elwar, 30.Júlí
STJÓRN ÍBV RAK NJÁL EIÐSSON
Stjórn knattspyrnudeildar ÍBV sendi eftirfarandi fréttatilkynningu frá sér seint á föstudagskvöld:

Sú ákvörðun hefur verið tekin af knattspyrnudeild ÍBV að leysa Njál Eiðsson, þjálfara ÍBV, undan samningi. Af ýmsum ástæðum hefur gengi ÍBV ekki staðið undir þeim væntingum sem til liðsins voru gerðar og því telur stjórnin rétt að fá nýjan aðila til að stjórna liðinu í deild og bikar.

Undir þessa fréttatilkynningu ritar svo stjórn knattspyrnudeildar ÍBV. Þessi orð koma mjög á óvart. Liðið hefur verið á uppleið að undanförnu og sitja nú í 7.sætinu og eru komnir í undanúrslit í bikarnum. Eyjamenn sögðust fyrir tímabilið ætla að byggja upp nýtt lið og halda sér í deildinni og ef þetta er ekki viðunandi árangur þá getur maður spurt hvert markmið stjórnarinnar var í raun og veru? ÍBV hefur nú rekið þjálfara meistaraflokks kvenna og karla en þessir þjálfarar eru þeir einu sem hafa fengið að taka poka sinn í efstu deildum karla og kvenna. Þetta segjir manni það að ekki sé allt með felldu í Vestmannaeyjum.