Jari Litmanen leikmaður Liverpool hefur ákveðið að fara til Ajax og gerði við þá árs samning.Fyrr í vikunni hafði Litmanen neitað að ganga til liðs við Galatasary frá Tyrklandi.
Aston Villa er líka búnir að fá til sín tvo nýja leikmenn, þá Oyvind Leonarhdsen og Ronny Johnsen. Persónulega tel ég það ekki góð kaup að fá Oyvind en Ronny getur verið frábær ef hann sleppur frá meiðslum.Annar norðmaður er einnig á leið í úrvalsdeildina á ný en það er Tore Andre Flo sem fer væntanlega til Sunderland seinna í dag (30.08.2002).Einnig hefur Jesper Blomqvist og Robbie Mustoe gengið til liðs við Charlton.Einnig er talið mjög lílegt að Robbie Keane muni í dag ganga til liðs við Tottenham fyrir 7 milljónir punda. Svo er stórfrétt dagsins sú að Real Madrid hafi boðið Inter 27 milljónir punda auk Santiago Hernan Solari í Ronaldo.Allt þetta kemur fram á Gras.is og 4thegame.com.