Leikir helgarinnar 23 - 25 ágúst Ensku meistararnir í Arsenal sluppu svo sannarlega með skrekkinn í leik sínum við West Ham á Upton Park í dag. Niðurstaðan varð 2:2 jafntefli eftir að West Ham hafði komist í 2:0 með mörkum Joe Cole og Frederick Kanoute. Thierry Henry minnkaði muninn fyrir Arsenal en skömmu síðar varði David Seaman, markvörður Arsenal,vítaspyrnu Kanoute. Sylvain Wiltord tryggði svo meisturunum annað stigið þegar hann jafnaði á lokamínútum leiksins.
Liverpool vann öruggan sigur á Southampton þar sem Senegalinn El Hadji Diouf opnaði markareikning sinn fyrir Liverpool. Hann skoraði tvö fyrstu mörkin og Danny Murphy innsiglaði sigurinn með marki út vítaspyrnu á lokamínútunni. Úrslitin í úrvalsdeildinni í dag urðu annars þessi:

Birmingham - Blackburn 0:1
—- sjálfsmark

Bolton - Charlton 1:2
Djorkaeff - Bart Williams, Jason Euell.

Middlesbr. - Fulham 2:2
Maccarone 2 - Inamoto, Davis.

Sunderland - Everton 0:1
Kevin Campbell.

Tottenham - Aston Villa 1:0
Jamie Redknapp.

West Ham - Arsenal 2:2
Joe Kole, Kanoute - Henry, Wiltord.