Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt landsliðshópinn sem mætir Portúgölum í vináttuleik miðvikudaginn 15. nóvember næstkomandi.
Markverðir eru þeir Birkir Krinstinsson, sem er nýgenginn til liðs við Stoke City og Árni Gautur Arason, leikmaður Rosenborg. Aðrir leikmenn eru Rúnar Kristinsson, Eyjólfur Sverrisson, Arnar Grétarsson, Ríkharður Daðason, Hermann Hreiðarsson, Arnar Gunnlaugsson, Helgi Kolviðsson, Brynjar Björn Gunnarsson, Auðun Helgason, Tryggvi Guðmundsson, Heiðar Helguson, Arnar Þór Viðarsson, Eiður Smári Guðjohnsen og Bjarni Guðjónsson.