Dregið í 16 liða úrslit bikarsins í dag Í dag var dregið í 16 liða úrslit bikarkeppninnar og verður nóg af athyglisverðum leikjum sem fara fram 2. og 3.júlí. Það er ljóst að a.m.k. þrjú úrvalsdeildarlið muni falla úr keppni í 16 liða úrslitunum. Bikarmeistarar Fylkis fá erfiðan heimaleik gegn FH, ÍA fær Grindavík í heimsókn og KR mætir Fram í væntanlegum hörkuleik. Það verður gaman að sjá hvernig Breiðablik spjarar sig gegn Þór Akureyri en Blikar unnu í kvöld ótrúlegan 7-4 sigur á Aftureldingu í 1.Deildinni. En leikirnir eru eftirfarandi:

Keflavík - Akranes U-23
Stjarnan - KA
Fylkir - FH
ÍBV - Þróttur R
KR - Fram
Breiðablik - Þór Ak.
Leiftur/Dalvík - Valur
Akranes - Grindavík