Ég fylgist nokkuð með vel íslendingaliðinu Stoke City og finnst
gengi þeirra hafa verið nokkuð vonbrigði framan af vetri (fyrir
utan bikarinn þar sem þeir eru að fara vinna poolarana). Ég held
nú samt að það fari að rofa til með tilkomu Ríkharðs Daðasonar ,sem er þó er “hæfileikalaus” sláni ,sem þó með heppni sinni og hæð nær að skora þó nokkuð af mörkum( sem er kannski
hæfileiki út af fyrir sig).
Svo má náttúrulega bæta við almæltum tíðindum sem eru að Arsenal
mun hampa enska titlinum í lok leiktíðar og jafnvel þeim evrópska líka. Það má sjá af leik þeirra að þar eru verðandi meistara á ferð ,það er hreinasta unun að horfa á samspil þeirra og knattækni sem á sér enga hliðstæðu.