Fyrsta stig ÍA í sumar Í dag fóru fram tveir fyrstu leikirnir í fjórðu umferð Símadeildarinnar. FH-ingar gerðu markalaust jafntefli við ÍA upp á Skipaskaga. Aldrei þessu vant var ágætis veður á Akranesi og leikurinn nokkuð fjörugur á köflum þrátt fyrir markaleysið. Leikmenn áttu samt í einhverjum erfiðleikum með að hemja boltann því völlurinn var víst frekar blautur. Daði Lárusson var öruggur í marki Hafnfirðinga og var stærsta ástæða þess að þeir náðu að halda hreinu. Valdas Trakys, litháinn öflugi var hættulegur fram á við fyrir liðið og virðist ætla sér stóra hluti í sumar. Skagamenn spiluðu nýja leikaðferð í leiknum og lágu aftar en oft áður, með þessari aðferð náðu þeir sér í sitt fyrsta stig í sumar. Þetta var fyrsti markalausi leikur tímabilsins og við vonum að þeir verði ekki mikið fleiri.

Grindvíkingar eru að komast á gott skrið eftir 3-0 sigurinn á ÍA í seinustu umferð. Í dag unnu þeir síðan ÍBV á heimavelli sínum 3-2. Eftir þetta er Grindavík sem stendur í efsta sætinu með 8 stig. Grétar Ólafur Hjartarson skoraði fyrsta markið fyrir Grindavík á 15. mínútu og var þetta fjórða mark hans á tímabilinu. Tómas Ingi Tómasson svaraði um hæl tveimur mínútum síðar, er hann skoraði yfir Albert Sævarsson. Scott Ramsey átti heiðurinn að öðru marki Grindvíkinga er hann lék á nokkra varnarmenn ÍBV, og gaf á Paul McShane sem skoraði, 2-1 á 59. mínútu. Mikill heppnis-stimpill var af markinu og var Bjarni Jóhannsson óragur við að viðurkenna það eftir leikinn. Óli Stefán Flóventsson skoraði af stuttu færi eftir að hafa tekið frákast eftir markvörslu Birkis Kristinssonar á 70. mínútu. Undir lok leiksins skoraði svo Gunnar Heiðar Þorvaldsson og minnkaði muninn fyrir ÍBV, en það dugði ekki og Grindvíkingar unnu öll stigin. Njáll Eiðsson, þjálfari ÍBV, sagði að lélegur völlur Grindvíkinga hefði ráðið úrslitum en hægt væri að kenna honum um tvö mörk heimamanna. Hann skildi ekki af hverju varavöllurinn hefði ekki verið notaður þar sem hann væri mun betri. Bjarni vildi ekki taka 100% undir þetta og benti á að Grindavík hefði verið mun sterkari í leiknum.

ÍA - FH 0-0

Grindavík - ÍBV 3-2
1-0 Grétar Hjartarsson
1-1 Tómas Ingi Tómasson
2-1 Paul McShane
3-1 Óli Stefán Flóventsson
3-2 Gunnar Heiðar Þorvaldsson

Spá mín um úrslit í næstu leikjum
Þór - Keflavík, sunnudag kl.19:15:
Keflavík hefur komið á óvart í byrjun móts. Kjartan Másson kann að stjórna þessu liði og þeir eiga eftir að sýna góðan leik á Akureyri. En Þór er með góða framherja og spái ég hér jafntefli 2-2.

KR - KA, sunnudag kl.19:15:
Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn. KR-ingar eru með rosalega góðan hóp leikmanna, mun betri en í fyrra. Eru líklegir Íslandsmeistarar, sama hvað Willum segir eiga eftir að taka KA 2-0.

Fylkir - Fram, mánudag kl.19:15:
Ég spái miklum baráttuleik milli þessara liða þar sem markverðirnir, Gunnar og Kjartan, verða í aðalhlutverkum. Stórmeistarajafntefli 0-0!