Samkomulag náðist í gær, fimmtudaginn 2. nóv., milli knattspyrnumannsins Andra Sigþórssonar og KR. Andri Sigþórsson fer því til austurríska félagsins Salzburg á morgun, og mun hefja með þeim æfingar á mánudag. Salzburg er í fimmta sæti austurrísku deildarinnar, sex stigum á eftir efsta liðinu. Tíu lið eru í efstu deildinni. Salzburg á leik á útivelli laugardaginn 11. nóv. nk. og þykir líklegt að Andri komi eitthvað inn á í þeim leik.