Keflavík á toppinn Keflavík hefur tekið forystu í Símadeildinni eftir glæsilegan 3:1 sigur á Fylki. FH vann KR í Hafnarfirði þar sem dómaranum fannst eitthvað voðalega skemmtilegt að dæma leikaraskap á Veigar Pál og Skagamenn töpuðu - ótrúlegt en satt - fyrir Grindavík sem komst þar með upp í annað sætið. Þór getur náð Keflvíkingum að stigum sigri þeir KA menn í lokaleik umferðarinnar í sannkölluðum grannaslag á Akureyri annað kvöld klukkan átta.