Grobbi vill í volgt sæti Gauja Þetta tek ég af Stoke vefnum á teamtalk.
Varð bara að svissa þessu yfir á ástkæra - ylhýra, BARA út af myndinni sem fylgdi með!!!!!!!
Bruce Grobbelaar, hinn 44 ára gamli gaur, hefur tilkynnt að hann langi til að taka við af Gauja ´Þórðar. Eitthvað var ferill hans sem þjálfari endaslepptur í Suður Afríku, hann var rekinn frá Super Sport United í desember en tók við keppinautunum í Hellenic og vill nú gera garðinn frægan á Englandi. Kallinn var í 13 ár hjá liverpool og fór þaðan ´94. Það er óhætt að segja að ferill hans hafi verið skrautlegur, framkoma skrautleg og endalok snautleg, enda dæmdur fyrir að hafa viljandi tapað leik.
Annars spilaði kallinn einhverju sinni með Stoke en þykir ekki alveg fyrsti kostur í djobbið. Myndin er hinsvegar snilld!