Spáð því að Grindavík vinni mótið Forráðmenn, þjálfarar og fyrirliðar liðana tíu í Símadeild karla í knattspyrnu gerðu sér lítið fyrir í dag og spáðu því að Grindvíkingar fagni sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í sumar. ÍA, Íslandsmeistararnir, verða verður samkvæmt spánni í öðru sæti og bikarmeistaralið Fylkis úr Árbænum í því þriðja. Keflavík og Þór frá Akureyri er spáð falli. Spá þess efnis var birt í dag á Grand-Hótel í Reykjavík. Stigin skiptust þannig: Grindavík: 257 stig

1. Grindavík: 257
2. ÍA: 242
3. Fylkir: 232
4. KR: 222
5. FH: 212
6. ÍBV: 120
7. Fram: 110
8. KA: 102
9. Keflavík: 78
10. Þór: 75.

Hér kemur síðan mín spá:

1. ÍA
2. Grindavík
3. Fram
4. Fylkir
5. ÍBV
6. KA
7. KR
8. FH
9. Þór Ak.
10. Keflavík

Það væri gaman að heyra ykkar spá fyrir sumarið.