Þróttur Reykjavíkurmeistari Þróttarar urðu í kvöld Reykjavíkurmeistarar karla í knattspyrnu eftir 1:0 sigur á KR. Leikurinn fór fram á gervigrasvellinum í Laugardal.

KR-ingar fengu kjörið tækifæri til að skora um miðjan fyrri hálfleik þegar þeir fengu dæmda vítaspyrnu, en Fjalar Þorgilsson, markvörður Þróttar, varði vel. Eina mark leiksins kom í síðari hálfleik þegar Brynjar Sverrisson setti knöttinn í fjærhornið, fram hjá Kristjáni Finnbogasyni í marki KR.

Þetta er í annað sinn sem Þróttur verður Reykjavíkurmeistari í sögu félagsins. KR hefur hampað þessum sama titli alls 35 sinnum.