KR og Þróttur leika til úrslita á Reykjavíkurmóti karla í knattspyrnu. Þetta varð ljóst í gær þegar KR vann Fram 3:1 með mörkum frá Einsa Dan, Sigurvin og Veigar Páli.
Úrslitaleikurinn fer fram á Gervigrasvellinum í Laugardal 10. maí.