Vinnie Jones er enn að.
Vinnie Jones var vikið af leikvelli eftir aðeins 15 sekúndna leik í leik sem átti að vera ,,vináttuleikur" í Hollywood. Vinnie var aðeins varamaður í leiknum, en þegar hann kom inná var hann ekki lengi að láta að sér kveða. Vinnie hljóp inn á völlinn og strax og leikurinn var flautaður á aftur fór hann í harkalega tæklingu og mótherjinn féll eins og kartöflupoki. Dómarinn hikaði ekki við að sýna honum rauða spjaldið, 15 sekúndum eftir að Vinnie kom inná. Eftir að hafa fengið rauða spjaldið athugaði Vinnie hvort mótherjinn hefði nokkuð meiðst og yfirgaf svo völlinn brosandi. Vinnie hefur leikið með Hollywood United í tvö ár.


——————————————————————————–