Heyrst hefur að Sunderland sé að spá í að fá miðjumanninn Emerson aftur til
Englands en hann lék um tíma með Middlesbrough. Brassinn hefur ekki notið sín
hjá Deportivo La Coruna og sagði nýlega að hann hefði fengið tilboð frá Englandi.
Peter Reid er mikill aðdáandi leikmannsins og enska pressan heldur því fram að
Sunderland hafi þegar haft samband við Depor og spurst fyrir um þennan 29 ára
leikmann.
-maniggi irc nick-Hvar a netinu get eg downloadað adsl ??????????????????????????