Emmanuel Petit segist ætla að verða áfram í herbúðum Chelsea þrátt fyrir að hann hafi ekki náð að finna sig almennilega í vetur. Á dögunum var nokkuð rætt um að hann væri á förum frá Englandi en hann segir: “Ég sagði aldrei að ég væri ekki ánægður hjá Chelsea. Fyrstu sex mánuðirnir hér voru erfiðir fyrir mig en síðan ég jafnaði mig af meiðslunum hef ég verið ánægður og það hafa menn séð í leikjum. Við erum í bikarúrslitunum og nálægt því að komast í meistaradeildina svo þetta er alls ekki slæmt tímabil. En ég held að við getum gert enn betur á næsta tímabili ef við fáum þrjá eða fjóra nýja menn.”


þetta tók ég af boltanum