Martin Keown hefur verið valinn í landsliðshóp Englendinga fyrir leikinn gegn
Paragvæ á miðvikudaginn. Keown vonast til að hefja leikinn og freista þess að
sýna nú Göran sænska að hann geti vel spjarað sig á HM. Sol Campbell fór
meiddur af velli eftir 59 mínútna leik gegn Boro og Patrick Vieira spilaði við hlið
Keowns það sem eftir lifði leiks. Sven Göran var á meðal áhorfenda og honum
hefur greinilega þótt frammistaða gamla mannsins nokkuð góð.
Það er óhætt að segja að miðverðirnir ensku séu laskaðir því Ugo Ehiogu fór
einnig meiddur af velli í bikarleiknum. Þá er Rio Ferdinand á sjúkralistanum.
Meiðsli Campbells voru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu en hann getur
sennilega ekki leikið með Arsenal gegn Ipswich, West Ham og Bolton.
-maniggi irc nick-Hvar a netinu get eg downloadað adsl ??????????????????????????