Framherjinn Enrico Chiesa vill komast frá Fiorentina enda á liðið í ógnarbasli. Þessi 31 árs framherji hóf tímabilið af fítonskrafti en meiddist svo á hné og verður ekki meira með. Varla þarf hann að óttast að vekja ekki áhuga liða í sumar en hann segist vilja fara í sterkt lið í Serie A. “Ég er ákveðinn karakter og ég vil vera hjá liði sem þarfnast mín virkilega,” sagði Chiesa. “Ég er 31, metnaðarfullur og áhugasamur. Ég vil spila í toppdeild en mér liggur ekkert á og ég mun meta bestu kostina. Ég fer þó ekki utan.”
Juventus og AC Milan hafa þegar verið orðuð við framherjann.

Þetta tók ég af boltinn.is
-maniggi irc nick-Hvar a netinu get eg downloadað adsl ??????????????????????????