Franski varnarmaðurinn Lilian Thuram segist hafa áhuga á að fara til Manchester United en aðeins ef hann fái að spila sem miðvörður. Þessi þrítugi landsliðsmaður kaus síðasta sumar frekar að fara til Juventus en Man United en hann yfirgaf þá herbúðir Parma. Nú segir hann að ef Alex Ferguson vilji bjóða sér stöðu í hjarta varnarinnar sé hann til í að skoða málið. Thuram sagði: "Ef Sir Alex Ferguson hringir og segir þú getur spilað í miðjunni mun ég spá í framtíð mína. Ég er ekki í vafa um að ég er miðvörður. Ég hef verið reiðubúinn að fórna mér til þessa en nú vil ég njóta þess að spila knattspyrnu í minni uppáhaldsstöðu.

Þetta tók ég af boltinn.is
-maniggi irc nick-Hvar a netinu get eg downloadað adsl ??????????????????????????