Dacourt að nálgast Lazio
Nú er talið að Olivier Dacourt sé reiðubúinn að ganga til liðs við Lazio í sumar. Hann hefur hingað til sagst vera á móti því vegna rasisma stuðningsmannanna. Nú er hins vegar sagt að hann kunni að vera á förum til liðsins fyrir 16 milljónir punda.
Umbinn Bruno Satin er þegar kominn í viðræður við Lazio og sagt er að leikmaðurinn stefni að því að tvöfalda laun sín en hann hefur fengið 25.000 pund á viku hjá Leeds.
Massimo Cragnotti sagði að samkomulag hefði ekki náðst en enn væri verið að ræða málin.

Þetta tók ég af Boltinn.is

Dacourt á væntanlega að taka stöðu Mentieda, sem er væntanlega á förum til A. Madrid í sumar. Kaupin hjá Lazio á Mentieda eru talin vera þau misheppnustu þetta árið á Ítalíu.