Frakkinn Gilles Grimandi er á förum frá Arsenal og ætlar að spreyta sig annars staðar. Samningur hans hjá félaginu rennur út í sumar en hann hefur verið á Highbury í fimm ár. Hann kom frá Monaco árið 1997.
Grimandi er orðinn 31 árs og telur sig eiga tvö ár eftir enn. Hann hyggst ekki eyða þeim í að spila varaliðsbolta. Hann hefur aðeins náð að byrja tíu leiki með aðalliðinu og veit að tækifærunum kemur ekki til með að fjölga. Ekki er ljóst hvert Grimandi fer en hann hefur ýjað að því að hann langi að prófa að leika í Japan.



Þetta tók ég af boltinn.is
-maniggi irc nick-Hvar a netinu get eg downloadað adsl ??????????????????????????