Valencia að undirbúa risatilboð Valencia að undirbúa risatilboð
Nú er talið að Valencia sé að undirbúa risatilboð í framherjann Mark Viduka hjá Leeds. The Sun heldur því fram að Spánverjarnir séu reiðubúnir að greiða 30 milljónir punda fyrir Ástralann. Viduka hefur gert fimmtán mörk á tímabilinu og lið á borð við Roma, AC Milan og Inter frá Ítalíu og Deportivo La Coruna frá Spáni hafa verið að hnusa í kringum hann. Þjálfari Valencia, Rafa Benitez, er samt viss um að geta fangað framherjann því tilboðið sé svo gott að Peter Ridsdale geti einfaldlega ekki hafnað því.