Þetta tók ég af Liverpool.is

Markus Babbel er mættur til æfinga á Melwood eftir erfið veikindi. Hann hefur dvalist í heimalandi sínu undanfarna mánuði við endurhæfingu en nú er hann kominn til Liverpool. Það eitt að hann virðist á leið til fullrar heilsu er gleðiefni en eftir er að sjá hvort hann nær sér nógu vel til að komast í fremstu röð á nýjan leik. Phil Thompson er auðvitað ánægður að fá Þjóðverjann aftur: “Markus er gríðarlega vinsæll á meðal liðsfélaga sinna og allir eru ánægðir að sjá hann aftur. Hann er byrjaður á léttum æfingum og það eru góðar fréttir. Hann mun ekki spila aftur fyrr en á næstu leiktíð. Það verður bara tekið eitt skref fyrir í einu. En það er frábært að fá hann hingað aftur.”

Gott að fá þennan snilling aftur tíl Anfiled en ég hugsa að hann egi ekki eftir að spila mikið með Liverpool á næsta tímabili
——–