Það er búið að draga í meistaradeildinni og það er hægt að segja að Liverpool hafi verið heppnari en Manchester United.
Drátturinn er svona:

Bayern Leverkusen - Liverpool
Manchester United - Deportivo La Coruna
Real Madrid - Bayern Munchen
Barcelona - Panathinaikos

Real Madrid - Bayern Munchen er augljóslega stærsta viðureignin. Þessi lið mættust einmitt í undanúrslitum í fyrra þar sem Bayern hafði betur. Sigurvegararnir úr Leverkusen - Liverpool og United - Deportivo mætast síðan í undanúrslitum þannig að það gæti farið þannig að United mæti Liverpool sem yrði náttútulega meira en lítið áhugavert.
Will there ever be a boy born who can swim faster than a shark?