Já…Manchester tapaði öðrum leik sínum í riðlakeppninni í gær gegn Anderlecht 2-1. Radzinski skoraði bæði mörk heimamann á 14. og 33. mín. Irwin minnkaði muninn á 36. mín úr víti.
Það er greinilegt að Manchester verða að fara að hugsa sinn gang. Það er ólíkt þeim að tapa bara yfir höfuð. Ætli þeir hafi farið í leikinn og allgjörlega vanmetið andstæðinginn?? Núna er það bara allt eða ekkert í næsta leik. Manchester verða að vinna Dinamo Kiev ef þær ætla að komast áfram. Það verður spennandi leikur.