Einu sinni voru þrír fótboltaáhugamenn að þvælast um Sádi Arabíu. Einn
hélt með Leeds, annar með Man-U en sá þriðji með Liverpool.

Auðvitað voru þeir allir fullir, en það er stranglega bannað í Saudi
Arabíu, þannig að þeir voru allir handteknir.

Svo voru þeir leiddir fyrir sheikinn. Sem sagði." Vegna drykkjuskapar á
almannafæri verðið þið allir hýddir 50 svipuhöggum. En vegna þess að í dag
er þjóðhátíðardagur hjá okkur ætla ég að veita ykkur tvær óskir hvorum.

Kom svo að því að hýða átti Leedsarann svo hann bað um að fá kodda bundinn
á bakið á sér og bestu fáanlega læknishjálp ef með þyrfti. kom svo að því
að hann var hýddur, en koddinn dugði ekki nema í 15 svipuhögg þannig að
hann varð alblóðugur og næstum dauður eftir þessa meðferð. En fékk
læknishjálp.

Síðan kom að United manninum….Hann sagði ég vil fá tvo kodda bundna á
bakið á mér, og ef með þarf þá bestu læknisaðstoð sem um getur.

Svo kom að hýðingunni. koddarnir dugðu í 30 svipuhögg. Blóðugur en á lífi
fékk Unided maðurinn góða aðhlynningu og var nokkuð kátur.

Loksins kom að Liverpool-manninum. Hann sagði hátt og snjallt…BÆTIÐI VIÐ
200 svipuhöggum og bindið helvítis United-manninn á bakið á mér.