Öllum leikjum kvöldsins í Meistaradeild lauk með jafntefli. Roma er í efsta sæti B-riðils með sjö stig, en er þó ekki öruggt áfram nema ná stigi gegn Liverpool í lokaleiknum. Barcelona getur sömuleiðis tryggt sér áframhaldandi þátttöku með sigri á Galatasaray. Liverpool kemst hins vegar ekki áfram nema með stórsigri á Roma og því aðeins að Galatasaray vinni líka leik sinn gegn Barcelona.

Í A-riðlinum eru línurnar skýrari, Bayern og United jöfn og efst og bæði komin áfram. Boavista tókst ekki að komast nær þeim eftir 1-1 jafntefli við Nantes, og er því fjórum stigum á eftir fyrir lokaumferðina. Lokaleikirnir skipta því litlu, nema til að skera úr um hvort það verður United eða Bayern sem fær heimaleik í fjórðungsúrslitunum.

Úrslit kvöldsins urðu: A Riðill
Manchester United - Bayern München 0 - 0
Nantes - Boavista 1 - 1
B Riðill
Roma - Galatasaray 1 - 1
Barcelona - Liverpool 0 - 0