Ferguson hefur skrifað undir
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið að því er fram kemur í tilkynningu í morgun. Það er fátt gefið upp um innihald samningsins en þó er nokkuð ljóst að hann gerir Ferguson að hæstlaunaðasta stjóranum í enska boltanum. Ferguson ætlaði að hætta í vor en kona hans og synir munu hafa talið honum hughvarf.