Bommel og Bronckhorst Giovanni Van Bronckhorst sagði á heimasíðu sinni: Ég veit að það hafa verið margar sögur um að Mark Van Bommel sé að koma til klúbbsins en ég veit það bara ekki sjálfur hvort hann sé að koma eða ekki. Ég hef eiginlega ekki talað við hann um Arsenal síðan í sumar svo ég veit ekki hvað hann hugsar. En hann er frábær fótboltamaður og ef stjórinn vill koma með hann til Highbury og hann kemur þá held ég að hann muni vera mjög góð viðbót við liðið. Við verðum bara að bíða og sjá hvað skeður.

Ég vona að hann komi til Arsenal og Vieira muni ekki fara því að ef Arsenal hefði Bommel og Vieira á miðjuni er Arsenal kominn með ótrúlega miðju ,hugsið ykkur:

LJUNGBERG BOMMEL VIEIRA PIRES

Þetta mundi vera ótrúleg miðja svo við Arsenal mennirnir skulum vona að þetta gerist svona.