Guðjón var víst að messa yfir sínum mönnum í hálfleik og var ekki alveg
sáttur við framgang þeirra í leiknum. Lét hann þá þessi dásamlegu orð
falla: “You either work your work, or you sit in the soup!” Leikmennirnir
skildu að sjálfsögðu lítið í Þessu, nema kannski þeir íslensku, en stóðu
sig víst öllu betur í seinni hálfleik. Þegar blaðamennirnir fóru svo að
spyrja íslenska þjálfarann hvað hann hefði eiginlega sagt við leikmenn í hálfleik
svaraði hann að bragði: “I took them to the bakery!”. Maðurinn er
náttúrulega snillingur!