hið stórslasaða- en þó óviðjafnanlega- lið, Leeds Utd fær erfitt verkefni annað kvöld(miðv.d), þe að spila við Besiktas í Tyrklandi.
Hinsvegar hef ég ekki neinar áhyggjur, því mínir menn eru hetjur. Nigel Martyn að vísu meiddur- eins og hálft liðið- en Robinson fer í markið og hann er djöfull góður. þið þarna poolarar og skumsarar, bíðið bara þar til Kewell er orðinn hress og allir hinir sjö eða átta sem eru á sjúkralistanum. Þá koma mínir menn til með að rjúka upp töfluna á þvílíkri ferð að þeir enda ofar en í fyrsta sæti, sennilega bara í fyrsta öðru og þriðja. Arsenikk verður svo í fjórða og hugsanlega helvítis skumsararnir í fimmta.