Mikið hefur verið spáð og spekúlereðað í væntanlegum kaupum Manchester United á þeim Diego Forlan og Paolo Di Canio að undanförnu. Hér eru nýjustu fréttirnar.

Samkvæmt heimildum RedIssue er Forlan á leiðinni til Middlesbroug og kemur því ekki til Man. Utd.

Netútgáfa RedNews greinir hins vegar frá því að tilkynningar um að Di Canio komi til United sé væntanleg á hverri stundu. Kaupverðið mun víst vera £2,5 milljónir.

Di Canio sagðist um helgina ekki vilja fara frá West Ham, en það væri stjórnin sem réði því hvort hann færi eður ei. Stjórn West Ham mun hafa samþykkt að selja Ítalann.