Manni á leið til Leeds?
Óstaðfestar fregnir herma að Real Madrid sé búið að samþykkja
sjö milljóna punda tilboð frá Leeds í Steve McManaman.
Leedsarar hafa lengi verið á höttunum eftir Manna en hann
hefur ávallt neitað að fara frá Madrid. Nú er komið annað hljóð í
strokkinn. Manni skrapp til Englands um jólin og hitti þá vin
sinn Robbie Fowler. Eftir þann fund breyttist afstaða Manna og
nú vill hann koma til Leeds. Samningaviðræður eru skammt á
veg komnar en Real ku vilja halda í Manna á meðan þeir eru að
spila í Meistaradeildinni.