Carew að öllu líkindum til Fulham Nojarinn John Carew er á leið til London þar sem hann mun hitta Jean Tigana, stjóra Fulham, til að ræða kaup og kjör. Valencia hafa tekið tilboði í kappann sem talið er hljóða uppa góðar 11 milljónir punda. Það gæti þó hugsanlega farið þannig að Carew verði lánaður til Fulham út þetta tímabil og að félagið fái forkaupsrétt á honum að þeim tíma loknum.
Rafael Benitez stjóri Valencia hefur lítið notað Carew á þessu tímabili, og sér Carew þá litla ástæðu til að stoppa lengur á Mestalla. Þessi kaup kæmi sér einnig vel fyrir Jean Tigana þar sem Fulham vantar markaskorar eftir að Barry Hayles og Luis Saha hættu allt í einu að skora eftir góða byrjun í haust.