Dwight Yorke á leiðinni til Fulham ..... Fulham eru sagðir hafa áhuga á því að fá Dwight Yorke til sín ef Manchester United fá Paolo Di Canio til sín. Þeir hafa lengi verið á eftir Yorke og eru sagðir vera að undirbúa 5 Milljón Punda tilboð í þennan þrítuga frábæra framherja sem hefur fengið lítið að spila með Manchester undanfarið. Yorke hefur aðeins fengið að spila í sex leikjum á þessu tímabili og skorað eitt mark sem er engan veginn ásættanlegt fyrir jafn góðan framherja og hann er. Hann er bara orðinn varamaður þarna hjá Manchester og það er eitthvað sem hann á erfitt með að sætta sig við enda er hér á ferðinni maður sem getur skorað 20 - 30 mörk á tímabili eins og hann sannaði þegar hann spilaði með Aston Villa áður en hann kom til Manchester árið 1998. Fulham þeir eru að leita að öðrum framherja vegna þess að Louis Saha er ekki alveg búinn að finna sig hjá þeim í úrvalsdeildinni. Þeir höfðu líka áhuga á Andy Cole fyrrverandi samherja Yorke áður en hann fór til Blackburn um seinustu helgi.