Þessi tvöfalda grein er copy-paste af http://www.boltinn.is. Ég vona að það sé í lagi

Duberry vill fara frá Leeds

Varnarmaðurinn Michael Duberry vill komast frá Leeds United og sagt er að Southampton, Charlton Athletic og Leicester City hafi öll áhuga á honum. Þessi 26 ára varnarmaður hefur ekki átt neina sæludaga hjá Leeds að undanförnu og hefur fengið hótanir eftir að hafa vitnað gegn Jonathan Woodgate. Southampton og Charlton eru sögð tilbúin að greiða Leeds um 3 milljónir punda fyrir miðvörðinn. David O´Leary segir að hann sé ekki til sölu.

Real sýnyr Dyer áhuga

The Sun hefur greint frá því að Real Madrid sé á höttunum eftir Kieron Dyer hjá Newcastle. Njósnarar frá Real voru á leik Newcastle gegn Arsenal og þar sem Dyer virðist vera að ná sér á strik eftir erfið meiðsli er reiknað með að risarnir komi með tilboð næsta sumar. Dyer kom til Newcastle árið 1999 en er nýkominn á skrið eftir að hafa verið tíu mánuði frá vegna erfiðra meiðsla. Hann hefur margoft verið orðaður við hin ýmsu félög og er metinn á 15 til 20 milljónir punda.