Það kemur fram í Morgunblaðinu í dag, föstudaginn 13. okt., að Guðmundur Benediktsson hafi hafnað tilboði frá KR, en Guðmundur er samningsbundinn til áramóta. Guðmundur er sagður hafa gert gagntilboð, en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er mikill munur á tilboði KR og gagntilboði Guðmundar. Það skýrist væntanlega innan skamms hver framtíð þessa snjalla knattspyrnumanns verður.