Ferill Hermans Hreiðarssonar Datt í hug að kynna fyrir ykkur feril Íslendingsins Hermans Hreiðarssonar.


Hermann Hreiðarsson lét fyrst sjá sig í ensku úrvalsdeildinni árið 1997, þegar hann gekk í raðir Crystal Palace á frjálsri sölu frá þáverandi Íslandsmeisturum ÍBV. Hermann náði þó ekki að hindra liðið frá falli sama ár.

Í september 1998 gekk hann til liðs við þriðjudeildarliðið Brentford fyrir 750 þúsund pund sem var þá metupphæð fyrir leikmann í þeirri deild. Brentford vann deildina þetta ár, en í óktóber 1999 fór Hermann til úrvalsdeildarliðsins Wimbeldon fyrir 2,5 milljónir punda. Líkt og hann gerði hjá Crystal Palace náði hann ekki að hindra liðið frá falli tímabilið 1999-00, þó vakti hann mikla athygli meðal margra liða.

Tímabilið 2000-01 gerði hann 4,5 milljóna punda samning við Ipswich sem voru þá nýlega búnir að komast upp í efstu deildina á Englandi og hafði félagið þá aldrei eitt svo miklu í leikmann áður. Ipswich náði fimmta sæti á sínu fyrsta ári í ensku úrvalsdeildinni og tryggðu sér þá þátttökurétt í UEFA Cup. 12 mánuðum seinna voru Ipswich menn ekki eins heppnir og þeir voru á síðasta tímabili og féllu niður um deild. Á sama tíma missti félagið þeirra bestu leikmenn en Hermann neitaði hins vegar að ganga til liðs við þáverandi nýliðana í ensku úrvalsdeildinni West Bromwich Albion sem buðu honum samning.

Í Mars 2003 hélt Hermann leið sinni til úrvalsdeildarliðsins Charlton fyrir 800 þúsund pund. Hann skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við félagið, auk þess sem að liðið fengi 100 þúsund pund ef þeir næðu að halda sér uppi tímabilið 2003-04. Hermann sannaði að hann væri eins og klettur í vörninni þegar að hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið þegar Charlton sigraði Manchester City á heimavelli 3-0. Sama tímabil missti hann aðeins af fimm leikjum af leiktíðinni og var reglulegur byrjunarliðsmaður hjá félaginu. Í lok tímabilsins 2006-07 féllu Charlton niður um deild, þá var það í fjórða skiptið sem Hermann féll niður úr úrvalsdeildinni, og allt með mismunandi liðum. Hermann var með klásúlu í samningnum sínum sem gerði honum kleyft að yfirgefa félagið ef það félli niður um deild.

Þann 25. maí 2007 gerði hann tveggja og hálfs árs samning við úrvalsdeilarliðið Portsmouth. Hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið þegar hann skoraði í 7-4 sigri Porstmouth gegn Reading. Hermann er enn þann dag í dag hjá félaginu og er hann að gera góða hluti á þeim bæ.

Hermann Hreiðarsson er giftur Rögnu Lóu Stefánsdóttur og eiga þau tvær dætur saman, sem heita Telma og Ýda, auk þeim barna sem Ragna átti sjálf, þeim Stefáni og Elsu.