Eric Cantona, sem var valinn leikmaður
aldarinnar síðustu hjá Manchester
United, vill að eftir sinn dag verði
ösku hans dreift á Old Trafford,
heimavöll United. “Þetta er mitt lið og
þar vil ég vera” sagði Cantona í
samtali við blaðið France Soir.

Frá því hann hætti hefðbundinni
knattspyrnuiðkun hefur Cantona að mestu
varið tíma sínum í að leika og kynna
strandfótbolta. Hann sagði ennfremur að
sig varðaði ekkert um gengi franska
landsliðsins á heimsmeistaramótinu,
aðeins árangur Englendinga skipti sig
einhverju máli.